spot_img
HomeFréttirSjö í röð hjá Spurs: Dallas lagði Lakers: Tvennutjútt Griffin á enda

Sjö í röð hjá Spurs: Dallas lagði Lakers: Tvennutjútt Griffin á enda

 
Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni í nótt þar sem San Antonio Spurs unnu sinn sjöunda deildarleik í röð og nágrannar þeirra í Dallas höfðu betur gegn Kobe Bryant og félögum í LA Lakers. Þá tapaði Cleveland sínum fjórtánda deildarleik í röð!
San Antonio 104-95 Toronto
Manu Ginobili var stigahæstur hjá Spurs með 23 stig og 7 stoðsendingar en hann setti niður öll 14 víti sín í leiknum. DeMar DeRozan var stigahæstur gestanna með 28 stig. Spurs hafa nú unnið sjö deildarleiki í röð.
 
Dallas 109-100 LA Lakers
Dallas slitu sig frá Lakers í þriðja leikhluta sem þeir unnu 30-17. Jason Terry og Shawn Marion gerðu báðir 22 stig í liði Dallas. Pau Gasol var stigahæstur hjá Lakers með 23 stig.
 
Cleveland 98-106 Phoenix
Antawan Jamison var stigahæstur í lánlausu liði Cleveland með 23 stig og 6 fráköst. Hjá Phoenix var gamli gárungurinn Grant Hill með 27 stig og 12 fráköst.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
New Jersey 103-95 Utah
Orlando 99-98 Philadelphia
Boston 86-82 Detroit
Milwaukee 100-87 Washington
New Orleans 103-102 Memphis (6 sigrar í röð hjá New Orleans)
Houston 104-89 New York
Denver 112-107 Oklahoma
Sacramento 90-94 Portland
Golden State 110-108 Indiana
 
LA Clippers 126-111 Minnesota
Fyrir leikinn var Blake Griffin með 27 tvennur í röð en ekkert varð af tvennunni í nótt, kappinn var með 29 stig og 8 fráköst. Annar magnaður leikmaður náði þó sinni tuttugustu og níundu tvennu í röð en kappinn sá heitir Kevin Love og gerði 26 stig og tók 11 fráköst fyrir Minnesota. Love er á sínu þriðja tímabili í NBA og er að eiga sitt besta tímabil til þessa með 21,3 stig og 15,6 fráköst að meðaltali í leik.
 
Mynd/ Manu Ginobili og Spurs eru á toppi vesturstrandar NBA deildarinnar með 86% sigurhlutfall.
 
Fréttir
- Auglýsing -