spot_img
HomeFréttirProkhorov klippir á hnútinn: Melo ekki í Nets

Prokhorov klippir á hnútinn: Melo ekki í Nets

 
Auðkýfingurinn og eigandi New Jersey Nets í NBA deildinni, Mikhail Prokhorov, hefur fyrirskipað sínum starfsmönnum hjá Nets að hætta að eltast við Carmelo Anthony, leikmann Denver Nuggets. Búið var að karpa um svaðalegan þriggja liða skiptidíl og Melo í miðju stormsins en Prokhorov sagði á blaðamannafundi: ,,Það kemur kemur stundum að því að verðið sé einfaldlega of hátt.” Víst þessi einn ríkasti maður heims hefur bakkað út úr dílnum þá má fastlega gera ráð fyrir því að dágóðar summur hafi verið í spilunum.
Nettur sápu-óperublær hefur verið yfir fréttaflutningum af þessu máli vestanhafs og nú þegar New Jersey hafa tapað sex deildarleikjum í röð er Rússinn ríki búinn að fá nóg. Áhrif umræðunnar hafi augljóslega náð til leikmanna Nets og að nú verði gengið frá samningaborðunum.
 
Þá stóð til að Prokhorov myndi hitta Carmelo Anthony í dag en ekkert verður af þeim fundi.
 
Það verður því eitthvað minna næstu dagana um sápu-óperufréttir tengdar þessu máli en Rússinn er örugglega ekki hættur í leit sinni að stórstjörnu handa New Jersey Nets.
 
Fréttir
- Auglýsing -