Við ræddum við Daníel Guðmundsson leikmann Stjörnunnar og Pétur Guðmundsson aðstoðarþjálfara Keflavíkur eftir viðureign liðanna í Ásgarði í kvöld. Daníel mótmælti því ekki að Keflvíkingum hefði tekist að ýta Stjörnunni út úr vel flestum þeirra aðgerðum.
Pétur sagði á hinn bóginn að í Keflavík væru til gullkálfar sem kynnu að velja erlenda leikmenn og þar er engu logið enda Thomas Sanders, nýjasta viðbótin í liði Keflvíkinga, að leika fantavel.




