Þórsarar máttu þola 77-92 tap á heimavelli gegn Breiðabllik í kvöld þegar liðin mættust í 13. umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Heimamenn byrjuðu leikinn betur en þegar líða tók á leikinn náðu gestirnir úr Kópavognum yfirhöndinni og létu hana aldrei af hendi. Góð hittni þeirra Arnars Péturssonar, Nick Brady og mikil barátta Þorsteins Gunnlaugssonar lagði grunninn að sigri Breiðabliks, en heimamenn áttu í miklum vandræðum með þá félaga. Svo fór að lokum að gestirnir fögnuðu öruggum 77-92 sigri.
Leikurinn var býsna jafn í upphafi, bæði lið gerðu sig þó sek um nokkur mistök og sóknarleikur liðanna náði því ekki neinu flugi. Þegar leið á fyrsta fjórðung náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu leikinn með tveimur stigum, 25-23 eftir fyrsta fjórðung. Gestirnir úr Kópavoginum komu þó grimmir til leiks í öðrum leikhluta. Þó svo að bæði lið ættu það til að gera klaufaleg mistök, þá gerðu gestirnir færri mistök og nýttu sóknir sínar betur. Varnarleikur heimamanna var ekki nógu góður og áttu í miklum vandræðum með að stöðva gestina sem náðu sex stiga forskoti, 42-48 áður en liðin gengu til búningsklefa.
Blikarnir með þá Þorstein Gunnlaugsson, Arnar Pétursson og Nick Brady í fararbroddi mættu afar ákveðnir til leiks í síðari hálfleik. Með fínum sóknarleik sem og varnarleik náðu Blikarnir mest 10 stiga forskoti. Vörn heimamanna var ekki neitt til að hrópa húrra fyrir enda fengu Blikar töluvert af opnum skotum sem þeir nýttu. Um miðbik þriðja leikhluta náðu Þórsarar fínum spretti og minnkuðu forskot gestanna niður í þrjú stig, 61-64. Blikarnir áttu þó lokaorðið í fjórðungnum og settu niður þrjú síðustu stig fjórðungsins og leiddu því leikinn með sex stigum, 61-67 fyrir síðasta fjórðung. Þrátt fyrir að heimamenn væru ekki að spila vel, áttu gestirnir í vandræðum með að slíta sig frá heimamönnum. Með þá Nick Brady og Arnar Pétursson í fararbroddi náðu gestirnir fínum spretti um miðbik fjórða fjórðungs og náðu að byggja upp gott forskot sem heimamenn náðu aldrei að vinna upp. Svo fór að gestirnir úr Kópavoginum fögnuðu öruggum 15 stiga sigri, 77-92.
Atkvæðamestir heimamanna: Óðinn Ásgeirsson 30 stig, 7 fráköst, Wesley Hsu 14, Konrad Tota 13, Ólafur Torfason 12 stig, 10 fráköst, Benedikt Pálsson 2, Baldur Már Stefánsson 2, Vic Ian Damasin 2 og Sindri Davíðsson 2 stig
Atkvæðamestir gestanna: Arnar Pétursson 22, Nick Brady 20, Þorsteinn Gunnlaugsson 16 stig, 23 fráköst, Aðalsteinn Pálsson 9, Steinar Arason 8, Atli Örn Gunnarsson 6, Rúnar Pálmarsson 5, Snorri Hrafnkelsson 4 og Hákon Bjarnason 2
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson




