spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Stútfull dagskrá

Leikir dagsins: Stútfull dagskrá

 
Körfuknattleiksunnendur ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í kvöld enda gnótt leikja í boði. Þrír leikir fara fram í Iceland Express deild karla og þrír í 1. deild karla. Viðureign ÍR og KFÍ sem frestað var í gærkvöldi er á dagskrá í kvöld kl. 19:15 í Seljaskóla.
Leikir kvöldsins í IEX karla:
 
19:15 Hamar-Fjölnir
19:15 Snæfell-Njarðvík
19:15 ÍR-KFÍ
 
Fjölnismenn eiga möguleika á því að rífa sig upp frá botnliðunum í kvöld með sigri í Hveragerði. Hamarsmenn hafa 10 stig í deildinni en Fjölnir 8. Bæði lið máttu sætta sig við tap í síðustu umferð, Fjölnir lá þá heima gegn Stjörnunni og Hamar tapaði gegn KR í Vesturbænum. Þá kætast bæði lið yfir þeirri staðreynd að eftir leikinn í kvöld verður annað hvort liðið búið að binda enda á fimm leikja tapkafla í deildinni.
 
Hólmarar fengu skell í síðustu umferð gegn Keflvíkingum og Njarðvíkingar lágu gegn ÍR í Ljónagryfjunni. Annað liðið er á toppnum, Snæfell, en hitt liðið á botninum, Njarðvík. Athyglisverð staðreynd í ljósi þess að liðin hafa þegar mæst tvisvar sinnum í vetur og Njarðvíkingar haft betur í bæði skiptin. Hólmarar verða án Ryan Amoroso í kvöld sem meiddur er á kálfa og Njarðvíkingar án Guðmundar Jónssonar sem meiddur er á ökkla.
 
James Bartolotta hefur fært ÍR aukið sjálfstraust í síðustu leikjum á meðan skortur á sjálfstrausti gerir vart um sig í herbúðum Ísfirðinga sem hafa tapað tíu deildarleikjum í röð. ÍR-ingar vonast til þess að Eiríkur Öndunarson verði í búning í kvöld en hann var ekki með gegn Njarðvík í síðustu umferð þar sem hann var að jafna sig af lungnabólgu. Þá fer hver að verða síðastur í tilfelli Ísfirðinga til þess að næla sér í stig í von um að eiga kost á því að bjarga sér frá falli í 1. deild.
 
Leikir kvöldsins í 1. deild karla:
18:30 Ármann-Valur
19:15 FSu-Þór Þorlákshöfn
19:15 Skallagrímur-Laugdælir
 
Eins og staðan er í dag ná Valsmenn ekki inn í úrslitakeppni 1. deildar og sigur því gríðarlega mikilvægur gegn Ármenningum í kvöld. Að sama skapi er baráttan við botninn blóðug enda þrjú lið með fjögur stig á botninum og Ármenningar neðstir þeirra og munu vísast gefa allt í leikinn í kvöld.
 
FSu hefur ekki verið sannfærandi á nýja árinu enda varð liðið fyrir gríðarlegri blóðtöku þegar Richard Field samdi við tékkneskt lið en hann var þeirra helsta vopn í 1. deildinni. Með sigri sínum í gær komst Þór Akureyri upp fyrir FSu í 2. sæti deildarinnar svo Selfyssingar verða að sýna sparihliðarnar ætli þeir sér að eiga erindi í ósigrað lið Þórs úr Þorlákshöfn. Þau tíðindi berast úr herbúðum Þórsara að Hjalti Valur Þorsteinsson sé meiddur og verði hugsanlega ekki meira með þetta tímabilið. Þórsarar þurfa þó ekki að örvænta enda komnir með 22 stig og þyrfti ansi mikið að fara úrskeiðis til þess að Benedikt og félagar misstu af úrslitakeppninni.
 
Í Borgarnesi eru menn á góðu róli með tvo deildarsigra í röð. Pétur Sigurðsson og Laugdælir koma í heimsókn í kvöld en Pétur er hverjum krók og kima kunnugur í Fjósinu enda á kappinn glæstan feril að baki með Sköllunum, dugir það til að hjálpa Laugdælum í botnbaráttunni í kvöld? Skallagrímur hefur 14 stig í 4. sæti deildarinnar en verða að halda dampi um þessar mundir enda stutt á milli feigs og ófeigs þegar verið er að berjast um sæti í úrslitakeppninni.
 
Fréttir
- Auglýsing -