Vatn er í langflestum brúsum körfuknattleiksmanna samkvæmt niðurstöðum úr könnuninni sem verið hefur í gangi hér á Karfan.is síðustu vikuna. Alls 72% aðspurðra eru með vatn í brúsanum sínum á bekknum en um 600 manns tóku þátt.
Niðurstöður könnunarinnar:
Vatn 72%
Herbalife 13%
Powerade 5%
Annað 4%
Gatorade 3%
Prótein-drykkur 1%
Nú er komin inn ný könnun og að þessu sinni spyrjum við hvort fólk vilji hafa óbreytt ástand á keppnisfyrirkomulaginu í Iceland Express deild karla, þrefalda umferð eða fjórfalda umferð með færri lið í deildinni.




