Eyðimerkurganga Ísfirðinga virðist engan endi ætla að taka í Iceland Express deild karla en í kvöld fór liðið fýluferð í Seljaskóla og lá gegn heimamönnum í ÍR 92-82. ÍR-ingar sýndu klærnar á lokasprettinum eftir þrjá jafna og spennandi leikhluta. Nemanja Sovic átti teiginn í kvöld með 27 stig og 6 fráköst en Darco Milosevic gerði 16 stig hjá gestunum ásamt Craig Schoen. Tapleikirnir eru því orðnir 11 talsins í röð hjá KFÍ sem situr á botni deildarinnar með 4 stig.
Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks en í stöðunni 11-11 hnoðaði ÍR í 8-0 áhlaup og þá tók Shiran Þórisson leikhlé fyrir gestina og um sex mínútur liðnar af fyrsta leikhluta. Skömmu eftir leikhlé gestanna stal Sveinbjörn Claessen boltanum, brunaði upp og tróð með tilþrifum. Allt benti til þess að heimamenn myndu nú stinga af gegn fremur andlausum gestunum en annað kom á daginn.
Richard McNutt átti fína spretti í fyrsta leikhluta fyrir gestina, barðist vel og vann ágætlega og Darco Milosevic setti kærkominn flautuþrist og minnkaði muninn í 27-23 og þannig stóðu leikar eftir upphafshlutann.
Nemanja Sovic reyndist KFÍ erfiður á blokkinni í fyrri hálfleik enda alkunnur fyrir snilli sína á þeim vettvangi. Í stöðunni 36-30 ÍR í vil tóku gestirnir á rás og settu 7 stig í röð, varnarleikurinn varð betri hjá KFÍ og ÍR lék á þessum tímapunkti eins og þeir hefðu gleymt tapleiknum fyrir vestan í fyrri umferðinni.
Heimamenn voru þó grimmari í fráköstunum og skilaði það vel, einnig fóru þeir að sækja betur á teig KFÍ á lokaspretti fyrri hálfleiks sem gaf vel því ÍR lokaði öðrum leikhluta með 11-5 spretti og staðan því 47-42 í leikhléi.
Nemanja Sovic var með 11 stig hjá ÍR í hálfleik en hjá gestunum að vestan var Darco Milosevic með 12 stig. Leó Sigurðsson kom ferskur af bekk KFÍ í fyrri hálfleik og barðist vel, efnilegur varnarmaður þar á ferð.
Nebosja Knezevic jafnaði metin í 54-54 í upphafi síðari hálfleiks með þriggja stiga körfu og upp hófst mikill baráttu leikhluti. Craig Schoen bætti strax við öðrum þrist fyrir gestina sem náðu myndarlegu 8-0 áhlaupi og ÍR tók leikhlé.
Heimamenn fóru að herða róðurinn í vörninni þar sem Kelly Biedler varði þrjú skot í leikhlutanum. Darco Milosevic var líflegur hjá KFÍ og gestirnir unnu þriðja leikhluta 18-21 og staðan því 65-63 fyrir ÍR fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Hrun varð á leik gestanna strax í upphafi fjórða leikhluta, ÍR setti niður tvo þrista á fyrstu andartökunum og komust í 76-66 með þrist frá Sovic eftir að Darco Milosevic hafði fengið sína fimmtu villu í liði KFÍ fyrir mótmæli við dómara. Andinn hlaupinn í heimamenn á meðan gestirnir létu hökuna síga niður í bringu.
Þegar rétt rúmar fimm mínútur voru til leiksloka tók Eiríkur Önundarson af öll tvímæli með þriggja stiga körfu og staðan 82-66. Ísfirðingar áttu sér ekki viðreisnar von og lokatölur því 92-82. Craig Schoen setti, hugsanlega, dýrmætan þrist við hávaðann í lokaflautinu því þar minnkaði hann muninn í 10 stig. KFÍ vann fyrri leik liðanna með 10 stiga mun og skoruðu meira í þeim leik en ÍR gerði í kvöld. Þetta leiðir af sér að KFÍ hefur betur innbyrðis gegn ÍR ef til þess kemur.
Heildarskor:
ÍR: Nemanja Sovic 27/6 fráköst, Kelly Biedler 16/15 fráköst/5 stoðsendingar/4 varin skot, James Bartolotta 16, Eiríkur Önundarson 13, Hjalti Friðriksson 10, Sveinbjörn Claesson 6, Níels Dungal 4, Ásgeir Örn Hlöðversson 0, Daníel Capaul 0, Friðrik Hjálmarsson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Davíð Þór Fritzson 0.
KFÍ: Darco Milosevic 16/8 fráköst, Craig Schoen 16/4 fráköst, Marco Milicevic 15/5 stoðsendingar, Richard McNutt 13/7 fráköst, Nebojsa Knezevic 12/5 fráköst, Ari Gylfason 6, Carl Josey 4, Sævar Vignisson 0, Leó Sigurðsson 0, Pance Ilievski 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Tómas Tómasson
Punktar:
-Enn eina ferðina bauð íþróttahreyfingin upp á tónlist sem einhverjir listamenn hafa hrist fram úr erminni á korteri. Kallað er eftir bótum í þessum málaflokki. Líkleg niðurstaða ef vandað yrði til valsins í tónlistinni væri fleiri áhorfendur!
-Kristinn Jónasson var í borgarlegum klæðum á bekk ÍR en Eiríkur Önundarson kominn í búning eftir fjarveru sökum lungnabólgu.
-KFÍ hafði fyrir leikinn í kvöld tapað 10 deildarleikjum í röð. Síðasti deildarsigur liðsins var einmitt gegn ÍR þann 18. október 2010.
-Kelly Biedler varði 3 skot í þriðja leikhluta fyrir ÍR.
-Næsti leikur ÍR í deild er gegn Tindastól á útivelli
-Næsti leikur KFÍ er gegn meisturum Snæfells á heimavelli
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski – [email protected] – James Bartolotta var með 16 stig hjá ÍR í kvöld en Breiðhyltingar eru öllu frískari með þennan nýja leikmann innanborðs.
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]




