spot_img
HomeFréttirValsmenn sigruðu Ármann; Lokatölur 69-94

Valsmenn sigruðu Ármann; Lokatölur 69-94

 
 
Valsmenn sóttu Ármenninga heim í gærkvöld í Laugardalshöllina í 1. deild karla. Valsmenn fóru hægt af stað og voru undir í hálfleik. Strákarnir komu einbeittir í seinni hálfleik og tóku öll völd á vellinum. Lokatölur voru 69-94. Þetta kemur fram á www.valur.is  
Leikurinn fór hægt af stað og gekk Valsmönnum illa að hitta úr skotunum sínum framan af. Eftir fyrsta leikhulta leiddi Valur með 3 stigum; 18-21. Valsmönnum gekk ill að koma sér í gang í öðrum leikhluta og vann Ármann leikhlutann með 5 stigum og var staðan 43-41 í hálf leik.
 
Leikmenn Vals komu einbeittir í seinni hálfleikinn, skelltu í lás í vörninni og tóku leikinn í sínar hendur. Strákarnir unnu þriðja leikhluta með 15 stigum og fjórða leikhluta með 12 stigum. Calvin Wooten var með 33 stig, þar af 31 í seinnihálfleik, 7 stolna bolta og 4 fráköst. Hörður Hreiðarsson fór mikinn í leiknum; skoraði 19 stig, tók 17 fráköst og stal 3 boltum. Sigmar Egilsson skoraði 10 stig og tók 8 fráköst og Snorri Sigurðsson var með 7 stig, 8 stoðsendingar og 5 fráköst. Birgir Björn Pétursson var með 8 stig og 11 fráköst. Hörður Nikulássonskoraði 6 stig, Pétur Jakobsson 3 stig, Þorgrímur Björnsson 3 stig, Alexander Dungal 2 stig, Benedikt Blöndal 2 stig og Björgvin Valentínusarson 1 stig.
 
Mynd/ Torfi Magnússon
 
 
Fréttir
- Auglýsing -