Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs, var ekki ánægður með leik sinna manna sem sigruðu FSu í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöld, 87-100. Sunnlenska.is ræddi við Benedikt eftir leik sem líkti Þórsliðinu við geimverur.
„Ég var ekki ánægður þegar ég labbaði hérna út úr salnum, mér fannst þetta ekkert sérstakt. Það vantaði algjört hjarta í vörnina og menn voru bara alveg týndir. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa því. Þetta var allt í lagi sóknarlega en við vorum algjörlega eins og geimverur sem voru að stíga á jörðina í fyrsta skipti í vörninni,“ sagði Benedikt í samtali við sunnlenska.is eftir leik.
Mynd/ Tomasz Kolodziejski – Benedikt var ekki sáttur þrátt fyrir sigur í gær.




