spot_img
HomeFréttirHvergerðingar láta Dabney fara

Hvergerðingar láta Dabney fara

 
Andre Dabney hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Hamar en forsvarsmenn félagsins hafa ákveðið að láta leikmanninn fara frá félaginu. Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars staðfesti þetta í samtali við Karfan.is nú í kvöld. Dabney hefur verið töluvert frá sínu besta undanfarið og því ættu þessi tíðindi ekki að koma mörgum í opna skjöldu.
,,Eftir frábært tímabil í fyrra voru bundnar vonir við að hann gæti spilað svipað í vetur ef ekki betur en hann hefur verið töluvert frá því og ekki annað hægt en að gera breytingar,” sagði Ágúst. Leit stendur nú yfir að nýjum erlendum leikmanni í Hveragerði og gat Ágúst ekki sagt hvort sá leikmaður yrði kominn í hópinn fyrir næsta deildarleik sem er þann 28. janúar næstkomandi þegar Hamar mætir Keflavík í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ.
 
Mynd/ Dabney kveður Hveragerði.
 
Fréttir
- Auglýsing -