spot_img
HomeFréttirMelo heitur í sigri Denver gegn Indiana

Melo heitur í sigri Denver gegn Indiana

 
Einn leikur fór fram í NBA deildinni í gær þegar Denver Nuggets tóku á móti Indiana Pacers í Pepsi Center í Denver. Sóknarleikurinn var í broddi fylkingar að þessu sinni þar sem lokatölur voru 121-107 Denver í vil.
Carmelo Anthony var stigahæstur í liði Denver með 36 stig og 8 fráköst og setti persónulegt met í leiknum með því að negla niður sex þristum. Tyler Hansbrough gerði 27 stig og tók 10 fráköst fyrir Indiana. Hansbrough datt í gírinn í leiknum enda hefur hann aðeins verið með 6,5 stig að meðaltali í leik þetta tímabilið.
 
Eftir leik liðanna í gær er Indiana í 10. sætinu á austurströndinni og því ekki í sæti sem gefur rétt á úrslitakeppninni. Denver er hinsvegar í sjöunda sæti á vesturströndinni og er því með sæti í úrslitakeppninni eins og sakir standa.
 
Mynd/ Melo setti sex þrista í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -