Síðasti leikurinn í fjórtándu umferð Iceland Express deildar kvenna fer fram í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Njarðvík kl. 19:15 í DHL-Höllinni í Vesturbænum. Sama hvernig leikur kvöldsins fer þá hefur hann ekki áhrif á endanlega stöðu í deildarkeppninni. Eins og stöðutaflan lítur út núna er endanleg mynd hennar og eftir kvöldið verður skipt upp í A og B riðla.
Nýliðar Fjölnis gerðu svo góða ferð á Ásvelli í gær er þeir lögðu Hauka 56-59. Á laugardag vann Hamar svo Keflavík og Snæfell lagði Grindavík í Röstinni.
Að loknum leik KR og Njarðvíkur í Iceland Express deild kvenna mætast svo KR og Njarðvík í bikarkeppninni í 10. flokki kvenna og því óhætt að slá því fram að um tvíhöfða verði að ræða í Vesturbænum í kvöld.
Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Margrét Kara Sturludóttir tekur á móti uppeldisfélagi sínu Njarðvík í kvöld.




