Körfuboltadagur KKÍ verður í Smáralindinni Laugardaginn 29. janúar í tilefni 50 ára afmælis KKÍ. Meðal gesta verður Íþróttaálfurinn og þá munu leikmenn úr Iceland Express deildunum sýna snilli sína. www.kki.is greinir frá.
Dagskrá hátíðarinnar:
14.00 Opnun hátíðarinnar í Smáralind
Afmæliskaka í boði fyrir alla gesti
Jóel Sæmundsson körfuboltamaður og leikari tekur við stjórninni og stýrir dagskrá og viðburðum.
14.10 Körfuboltastöðvar, leikmenn Iceland Express deilda sprella með gestum og gangandi.
– víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
14.30 Leikmenn úr Iceland Express deildum karla og kvenna sýna listir
– 3ja-stiga keppni milli sigurvegara Stjörnuleiks karla og kvenna
– Keppt í einfaldri þrautabraut á tíma
15.00 Formleg setning afmælisársins
Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður heldur stutta tölu og kynnir árið, happdrættið og fleiri viðburði á árinu og setur afmælishátíðina og afmælisárið.
15.15 Latibær kemur í heimsókn
15.45 Körfuboltastöðvar halda áfram
– víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
17.00 Formlegri dagskrá lýkur
Að auki verða plaköt gefin, Playstation kassar með NBA Jam leiknum verður á staðnum fyrir gesti að prófa svo eitthvað sé nefnt.




