spot_img
HomeFréttirÚrslit: KR lagði Njarðvík þrátt fyrir veglega viðbót hjá grænum

Úrslit: KR lagði Njarðvík þrátt fyrir veglega viðbót hjá grænum

 
Síðasti deildarleikurinn í venjulegri deildarkeppni fór fram í DHL-Höllinni í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR tóku á móti Njarðvíkingum. Boðið var upp á ágætan baráttuleik þar sem KR hélt rétt á spilunum og landaði góðum sigri.
KR 70-60 Njarðvík
Chazny Morris var stigahæst í liði KR með 16 stig og 6 fráköst. Margrét Kara Sturludóttir gerði 15 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Hjá Njarðvíkingum var Shayla Fields með 19 stig og 5 fráköst Dita Liepkalne gerði 13 stig og tók 10 fráköst. Julia Demirer gerði 9 stig og tók 14 fráköst í frumraun sinni með Njarðvíkingum.
 
Lokastaðan í deildinn
Hamar – 28
Keflavík – 22
KR – 18
Haukar – 12
Snæfell – 12
Njarðvík – 8
Grindavík – 6
Fjölnir – 6
 
A-riðill
Hamar
Keflavík
KR
Haukar
 
B-riðill
Snæfell
Njarðvík
Grindavík
Fjölnir
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ Tomasz Koldziejski: Julia Demirer lék sinn fyrsta leik með Njarðvík í kvöld og mátti þola tap með grænum.
 
Fréttir
- Auglýsing -