Njarðvíkingar hafa bætt við sig tveimur útlendum leikmönnum. Annar leikmannanna kom til landsins í gærmorgun en hinn á að hafa komið til landsins í dag. Fyrsta æfing þeirra er í kvöld með liðinu en Friðrik Ragnarsson, þjálfari liðsins vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. www.vf.is greindi frá þessu í dag.
Njarðvíkingar eru illa staddir í deildinni og segja sumir stuðningsmenn að björgunaraðgerðir séu í gangi. Erlingur Hannesson, stjórnarmaður körfuknattleiksdeildar UMFN sagði í viðtali við Víkurfréttir að velunnarar félagsins greiði laun leikmanna og að stjórnin hafi ekkert með þetta að gera.
Frétt af www.vf.is




