spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Mikilvægur slagur á botninum

Leikir dagsins: Mikilvægur slagur á botninum

 
Einn leikur fer fram í 1. deild karla í dag þegar botnliðin Laugdælir og Ármann mætast á Vatninu kl. 19:45 í mikilvægum slag. Bæði liðin sitja á botni 1. deildar með fjögur stig og það lið sem fer með sigur af hólmi í kvöld skilur hitt eitt eftir á botninum.
Höttur og Leiknir eru ekki langt undan með 6 stig svo lokaspretturinn við botninn verður afar spennandi.
 
Þá er einn leikur í 2. deild karla í kvöld þegar Hrunamenn taka á móti Reyni Sandgerði að Flúðum kl. 20:30.
 
Fréttir
- Auglýsing -