Bakvörðurinn Craig Schoen hefur verið útnefndur Íþróttamaður ársins hjá KFÍ á Ísafriði. Þetta kemur fram á www.kfi.is Craig hefur verið liðsmaður KFÍ síðastliðin þrjú ár og látið vel að sér kveða fyrir vestan.
Látum hér umsögn KFÍ síðunnar fylgja með:
Leiktímabilið 2009 til 2010 var eitt það stærsta og farsælasta í sögu Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar. Nokkrum leikjum fyrir lok tímabils var ljóst að KFÍ-liðar yrðu deildarmeistarar í 1. deild karla og það með nokkrum yfirburðum. Þetta afrek liðsins lyfti KFÍ á stall meðal þeirra bestu í körfuknattleik á Íslandi, enda koma nú aftur til keppni á Ísafirði öll stærstu og sterkustu körfuknattleikslið landsins.
Að öllum öðrum ólöstuðum, sem komu að liðinu á umræddu tímabili, þá er það ótvírætt einn maður sem bar liðið á herðum sér að þessum frábæra árangri. Það er leikstjórnandi KFÍ, Craig Schoen.
Craig hefur nú verið hjá KFÍ í þrjú ár og má segja að hjarta liðsins slái í þessum annars lágvaxna leikmanni sem á vellinum er sannkallaður herforingi. Hann lætur hlutina gerast og stýrir öllum takti liðsins. Craig er heilsteyptur og heiðarlegur, hvort heldur er inni á leikvelli eða utan hans. Hann er helsta fyrirmyndin í KFÍ, sem allir iðkendur líta upp til enda nær hróður hans langt út fyrir raðir KFÍ. Craig hefur einnig komið að þjálfun yngri flokka þann tíma sem hann hefur verið liðsmaður KFÍ og sinnt því við góðan orðstír.




