Hallgrímur Brynjólfsson og Elvar Guðmundsson eru mættir aftur í Þorlákshöfn og munu leika með Þórsurum út tímabilið í 1. deild karla. www.thorkarfa.com greinir frá en báðir hafa leikmennirnir áður leikið með Þór.
Á heimasíðu Þórsara segir:
Stuðningsmenn og leikmenn liðsins eiga að kannast vel við þessa kappa en Elvar lék eitt tímabil með Þórsurum tímabilið 2008-2009 en hann lék með ÍR á síðasta tímabili. Hadda þarf vart að kynna en hann þekkja allir Þorlákshafnarbúar og hefur hann leikið ófá tímabilin með liðinu. Undanfarin ár hefur Haddi stundað nám í Danmörku en þannig vill til að hann er á Íslandi í starfsnámi frá skólanum og verður hér á klakanum næstu 10 vikurnar og mun klára tímabilið með Þórsurum.
Mynd/ Hallgrímur t.v. og Elvar t.h.




