spot_img
HomeFréttirTíu í röð hjá Hornets: Risaframmistaða hjá Durant

Tíu í röð hjá Hornets: Risaframmistaða hjá Durant

 
Kevin Durant lét vel að sér kveða í NBA deildinni í nótt þegar Oklahoma City Thunder lönduðu spennusigri eftir framlengdan leik. Alls tíu leikir voru á dagskránni og þar unnu New Orleans Hornets m.a. sinn tíunda deildarsigur í röð.
Minnesota 117-118 Oklahoma
Framlengja varð leikinn þar sem staðan var 110-110 eftir venjulegan leiktíma. Kevin Love fékk séns á því að stela sigrinum fyrir Minnesota með erfiðu sveifluskoti sem skoppaði upp úr hringnum. Í framlengingunni áttu Minnesota möguleika á því að jafna en brenndu af einu víti og tóku erfitt þriggja stiga skot, gerðu í raun allt rangt á mikilvægum lokaspretti og því fór Oklahoma heim með sigur. Kevin Durant fór mikinn í liði gestanna með 47 stig og 18 fráköst! Kevin Love var atkvæðamestur í liði Minnesota og landaði sinni fertugustu tvennu á tímabilinu með 31 stig og 21 frákast.
 
Golden State 103-112 New Orleans
David West gerði 22 stig í liði Hornets og Chris Paul bætti við 18 stigum og 17 stoðsendingum. Allt byrjunarlið Hornets gerði 11 stig eða meira í leiknum. Hjá Golden State var Monta Ellis með 26 stig og 5 stoðsendingar.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Indiana 96-111 Orlando
New Jersey 93-88 Memphis
Toronto 94-107 Philadelphia
Detroit 100-109 Denver
Milwaukee 98-90 Atlanta
Houston 96-83 LA Clippers
Phoenix 107-114 Charlotte
Utah 105-112 San Antonio
 
Mynd/ Kevin Durant skilaði góðu djobbi í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -