spot_img
HomeFréttirStúdentar veifa íslenska fánanum á heimaleikjum Maryland

Stúdentar veifa íslenska fánanum á heimaleikjum Maryland

 
Töluverða athygli vakti á dögunum þegar Haukur Helgi Pálsson var valinn í byrjunarlið Maryland háskólaliðsins þegar Maryland tók á móti Clemson skólanum. Maryland hafði nauman sigur í leiknum og mæta í kvöld Virginia skólanum á útivelli. Við náðum tali af Hauk sem kvað það ekki hafa verið leiðinlegt að komast í byrjunarliðið.
,,Það varð allt brjálað þegar ég var í byrjunarliðinu þegar verið var að tilkynna leikmenn. Svo var ekki heldur slæmt að vera í byrjunarliðinu þetta kvöld því Óskar Kristjánsson, mesti snillingur í heimi, sem býr í Flórída kom og heimsótti mig og horði á leikinn með tveimur vinum sínum,“ sagði Haukur sællar minningar en körfuknattleiksunnendur ættu margir hverjir að þekkja KR-inginn Óskar Kristjánsson en hann og Haukur kynntust á meðan Haukur var í Montverde miðskólanum í Flórída.
 
,,Ég lenti í villuvandræðum fljótlega í leiknum gegn Clemson en þetta var samt bara geðveikt, það eru nokkrir stúdentar þarna sem eru með stóran íslenskan fána á heimaleikjum okkar, ekkert nema snilld,“ sagði Haukur og sagði að sínir menn í Maryland hefðu verið staðráðnir í því að standa sig eftir stórt tap gegn Virginia Tech. ,,Við þurftum á sigrinum gegn Clemson að halda því við töpuðum með 17 stiga mun á heimavelli gegn Virginia Tech sem er stærsti ósigur Maryland á heimavelli í einhver 12 ár held ég,“ sagði Haukur sem kveðst annars sáttur með hlutverk sitt í liðinu.
 
,,Ég er ennþá bara að berjast fyrir fleiri mínútum. Svo koma pabbi og Tryggvi bróðir minn í heimsókn og ná að sjá leiki gegn Duke, Wake Forest og Longwood, það verður stuð og ég get ekki beðið,“ sagði Haukur og verður fróðlegt að sjá í nótt hvort kappinn haldi sætinu góða í byrjunarliði Maryland.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -