spot_img
HomeFréttirÚrslit: Haukar fyrstir til að leggja Grindavík í Röstinni!

Úrslit: Haukar fyrstir til að leggja Grindavík í Röstinni!

 
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld og mörkuðu þeir upphaf fimmtándu umferðar í deildinni. Nýliðar Hauka urðu fyrstir liða til þess að ná í sigur í Röstinni í Grindavík og því eru bara tvö lið eftir í deildinni með óflekkaðan heimavöll þetta tímabilið en það eru KR og Snæfell. Þá náðu Njarðvík og Tindastóll einnig í góða sigra.
Grindavík 63–82 Haukar
Gerald Robinson var með næstum því dónalega tvennu í Röstinni en kappinn gerði 20 stig og tók 23 fráköst í liði Hauka. Semaj Inge kom þar næstur í röðinni með 19 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Grindvíkingum var Páll Axel Vilbergsson með 20 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Með sigrinum í kvöld bundu Haukar enda á sex leikja sigurgöngu Grindavíkur í deildinni og sjö leikja heimasigurgöngu Grindvíkinga.
 
Tindastóll 78-69 ÍR
Boðið var upp á spennandi leik í Síkinu á Sauðárkróki þar sem Stólarnir reyndust sterkari á lokasprettinum. Hayward Fain gerði 23 stig og tók 10 fráköst hjá Tindastól og Sean Kingsley Cunningham bætti við 20 stigum. Kelly Biedler var svo atkvæðamestur í liði ÍR með 14 stig og 9 fráköst.
 
Njarðvík 89–68 Stjarnan
Njarðvíkingar bundu enda á fjögurra leikja tapseríu þar sem nýju þjálfararnir Einar Árni og Friðrik Pétur fundu sinn fyrsta sigur. Jonathan Moore fann sig vel í sínum fyrsta leik fyrir græna og gerði 23 stig og tók 5 fráköst. Christopher Smith bætti við 20 stigum og Nenad Tomasevic gerði 18 stig og 5 fráköst. Hjá Stjörnunni var Justin Shouse með 16 stig og þeir Jovan Zdravevski og Fannar Freyr Helgason bættu við 11 stigum hver.
 
Úrslit í 1. deild karla
 
Þór Akureyri 90-79 FSu
Konrad Tota gerði 28 stig fyrir Þórsara og Óðinn Ásgeirsson bætti við 23 stigum, 13 fráköstum og 5 stoðsendingum. Hjá FSu var Valur Orri Valsson með 22 stig.
 
Höttur 80-106 Þór Þorlákshöfn
Tölfræði úr leiknum vantar.
 
Nánar síðar…

Mynd/ Gerald Robinson fór mikinn í Grindavík í kvöld.

 
Fréttir
- Auglýsing -