Haukar urðu í gær fyrstir allra til að leggja Grindavík í Röstinni í vetur. Ekki nóg með að sigur Hauka hafi verið þokkalega stór þá héldu þeir Grindvíkingum einugis í 63 stigum sem þykir verulega gott gegn einu besta sóknarliði deildarinnar.
Karfan.is hitti þá Helga Jónas Guðfinnsson hjá Grindavík og Óskar Inga Magnússon hjá Haukum og tóku léttan púls á þeim.
„Við vorum hreinlega ekki með í kvöld og Haukar náðu til dæmis einhverjum 60 skotum í fyrri hálfleik, það er bara of mikið,“ sagði Helgi Jónas og vonbrigði með spilamennsku sinna manna leyndi sér ekki.
„Við spiluðum hreint út sagt ömurlega og þegar menn mæta ekki tilbúnir þá getur hvaða lið sem er unnið okkur.“ bætti hann við.
Mikið ævintýr hefur verið á kanaveiðum Grindvíkinga og aðspurður að því hvort eintak væri á leiðinni í Grindavíkurliðið sagði Helgi að hann verði kominn fyrir næsta leik. „Hann er vonandi bara á leiðinni út á völl,“ sagði Helgi en vildi ekki gefa upp hver það væri sem kæmi en sagði að þetta væri splúnkunýtt eintak sem ekki hefði spilað hér áður.

Óskar Ingi Magnússon var að vonum kátur eftir leikinn og sagði að þetta yrði gott veganesti fyrir viðureign þessara liða í bikarkeppninni.
„Þetta var bara hörku leikur hjá okkur. Við skorum 82 stig og náum að halda þeim í 63 stigum sem er bara alveg frábært á þeirra heimavelli en vörnin okkar var bara frábær í kvöld og það skóp þennan sigur,“ sagði Óskar, fyrirliði Hauka, kampakátur í leikslok.
Liðin mætast í undanúrslitum bikarkeppninnar 6. febrúar og segir Óskar að liðsmenn Hauka séu ekkert smeykir þrátt fyrir svona góðan sigur. „Þetta eru náttúrulega tveir ólíkir leikir, hérna vinnum við í deild en hitt er bara 50-50 leikur. Hann er á okkar heimavelli og ef við spilum áfram þessa vörn þá tökum við þann leik“ sagði Óskar.
Myndir: tomasz@karfan og [email protected]




