Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem New York Knicks náði loks fram sigri gegn Miami Heat í áttundu tilraun í viðureignum liðanna. Lokatölur í Madison Square Garden voru 93-88 Knicks í vil.
Amare Stoudemire var aldrei þessu vant ekki með tvennu en kappinn var þó stigahæstur hjá Knicks með 24 stig og 8 fráköst. Hjá Miami var Dwyane Wade með 34 stig, 16 fráköst og 5 stoðsendingar.
Dallas 111-106 Houston
Tyson Chandler fór mikinn í Texasslagnum með 21 stig og 15 stig í liði Dallas. Annars voru sjö leikmenn Dallas sem gerðu 10 stig eða meira í leiknum! Hjá Houston var Argentínumaðurinn Luis Scola með 30 stig og 8 fráköst.
Portland 78-88 Boston
Ray Allen gerði 18 stig hjá Boston og Paul ,,The Truth” Pierce bætti við 17 stigum. Hjá Portland var LaMarcus Aldridge atkvæðamestur með 17 stig og 16 fráköst.
Mynd/ Stoudemire og félagar í Knicks lögðu Heat í nótt.




