spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Lok fimmtándu umferðar í IEX karla

Leikir dagsins: Lok fimmtándu umferðar í IEX karla

 
Fimmtándu umferð í Iceland Express deild karla lýkur í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Í gærkvöldi náðu Njarðvík, Haukar og Tindastóll í tvö góð stig og í kvöld geta KR og Keflavík minnkað bilið á milli sín og Grindavíkur sem lá gegn Haukum í gær. Með sigri í kvöld geta svo meistarar Snæfells komist einir á toppinn á nýjan leik er þeir heimsækja KFÍ í Jakann á Ísafirði.
Leikir kvöldsins í IEX deild karla:
 
KFÍ-Snæfell (ath kfi.is fyrir beina netútsendingu)
Keflavík-Hamar
Fjölnir-KR (ath fjolnir.is fyrir beina netútsendingu)
 
Þá eru tveir leikir í 1. deild karla en deildin er afar áhugaverð um þessar mundir þegar skoðuð eru svæðin sem fella og sem gefa sæti í úrslitakeppninni. Pakkinn er orðinn ansi þéttur og vafalítið verður lokaspretturinn sögulegur.
 
19:15 Breiðablik-Skallagrímur
20:00 Valur-Leiknir
 
Fréttir
- Auglýsing -