spot_img
HomeFréttirKobe með flest atkvæði fyrir Stjörnuleikinn - Yao Ming valinn til að...

Kobe með flest atkvæði fyrir Stjörnuleikinn – Yao Ming valinn til að byrja

Búið er að birta hvaða leikmenn fengu flest atkvæði fyrir Stjörnuleikinn í NBA en atkvæðagreiðslan hefur staðið yfir á netinu undanfarnar vikur. Hinn litríki Kobe Bryant hlaut flest atkvæði, með tæplega 2.4 milljónir atkvæða, en þetta er í þrettánda sinn í röð sem hann tekur þátt í Stjörnuleiknum en metið eiga þeir Jerry West, Karl Malone og Shaquille O´Neal sem tóku þátt í fjórtán leikjum í röð.
Kínverska tröllið Yao Ming er meiddur og verður því ekki með. Einvaldur NBA, David Stern, fær því það hlutverk að velja leikmann í hans stað.
 
Gregg Popovich stjóarnar liði vestursins en það kemur í ljóst eftir 6. febrúar hver stjórnar austurinu en sá þjálfari sem er með besta árangurinn á þeim tímapunkti stjórnar liðinu.
 
Þjálfararnir í deildinni velja varamennina en það val verður kunngert seinna.
 
En byrjunarliðin eru eftirfarandi.
 
Austur:
Derrick Rose – Chicago
Dwayne Wade – Miami
LeBron James – Miami
Amare Stoudamire – New York
Dwigth Howard – Orlando
 
Vestur:
Chris Paul – New Orleans
Kobe Bryant – L.A. Lakers
Kevin Durant – Oklahoma City
Carmelo Anthony – Denver
Yao Ming – Houston

Atkvæðin:
 
Austurströndin

Framherjar: LeBron James (Mia) 2,053,011; Amar’e Stoudemire (NYK) 1,674,995; Kevin Garnett (Bos) 1,407,601; Paul Pierce (Bos) 804,838; Chris Bosh (Mia) 571,734; Carlos Boozer (Chi) 504,610; Danilo Gallinari (NYK) 390,658; Josh Smith (Atl) 387,843; Luol Deng (Chi) 291,118; Danny Granger (Ind) 279,522.

Bakverðir: Dwyane Wade (Mia) 2,048,175; Derrick Rose (Chi) 1,914,996; Rajon Rondo (Bos) 1,587,297; Ray Allen (Bos) 890,951; Raymond Felton (NYK) 397,301; John Wall (Was) 337,368; Gilbert Arenas (Orl) 312,903; Brandon Jennings (Mil) 301,225; Jamal Crawford (Atl) 246,130, Joe Johnson (Atl) 224,571.

Miðherjar: Dwight Howard (Orl) 2,099,204; Shaquille O’Neal (Bos) 906,284; Joakim Noah (Chi) 432,127; Andrew Bogut (Mil) 301,896; Al Horford (Atl) 287,083; Roy Hibbert (Ind) 250,614; Andrea Bargnani (Tor) 215,123; Brook Lopez (NJ) 166,844; JaVale McGee (Was) 146,474; Ben Wallace (Det) 113,443.

Vesturströndin

Framherjar: Kevin Durant (OKC) 1,736,728; Carmelo Anthony (Den) 1,299,849; Pau Gasol (LAL) 1,100,772; Blake Griffin (LAC) 1,033,646; Tim Duncan (SA) 839,599; Dirk Nowitzki (Dal) 785,120; Lamar Odom (LAL) 529,854; Kevin Love (Min) 492,173; Luis Scola (Hou) 411,576; Rudy Gay (Mem) 284,021.

Bakverðir: Kobe Bryant (LAL) 2,380,016; Chris Paul (NOH) 1,281,591; Manu Ginobili (SA) 748,840; Steve Nash (Pho) 718,934; Russell Westbrook (OKC) 660,244; Deron Williams (Utah) 657,806; Tony Parker (SA) 436,958; Jason Kidd (Dal) 394,793; Monta Ellis (GSW) 390,237; Vince Carter (Pho) 353,143.

Miðherjar: Yao Ming (Hou) 1,146,426; Andrew Bynum (LAL) 974,546; Nene (Den) 599,048; Marc Gasol (Mem) 524,932; Emeka Okafor (NOH) 435,218; Brendan Haywood (Dal) 352,811; Marcus Camby (Por) 279,026; Chris Kaman (LAC) 196,268; Andris Biedrins (GSW) 175,547; DeMarcus Cousins (Sac) 152,976.

Mynd/Kobe Bryant er vinsælasti leikmaður NBA í Stjörnuleiknum

Fréttir
- Auglýsing -