spot_img
HomeFréttirLiðsmenn Boston næst vinsælastir

Liðsmenn Boston næst vinsælastir

Karfan.is sagði frá því í gærkvöldi að búið væri að tilkynna byrjunarliðin í Stjörnuleiknum. Eins og ávallt þá velja aðdáendur í gegnum veraldarvefinn og töldu atkvæðin tugum milljóna. Enginn leikmaður Boston er í byrjunarliði austurliðsins en þegar betur er gáð njóta þeir töluverðar vinsældar.
Þeir LeBron James, Amare Stoudamire, Dwayne Wade, Derrick Rose og Dwigth Howard skipa byrjunarlið austursins. En þeir leikmenn sem fengu flest atkvæði byrja.
 
Þegar skoðað er hverjir voru næstir inn í byrjunarliðin miðað við atkvæði þá  þá var það byrjunarlið Boston eins og lagði sig.
 
Á eftir þeim Dwayne Wade og Derrick Rose í bakvarðastöðunum voru það Rajon Rondo og Ray Allen.
 
Á eftir þeim LeBron James og Amare Stoudamire í framherjastöðunum voru það Kevin Garnett og Paul Pierce komu næstur inn.
 
Á eftir Dwight Howard í miðherjastöðunni er það Shaquille O´Neal sem hlaut næst flest atkvæði.
 
Það má með sanni segja að liðsmenn Boston séu næst vinsælastir.

Framherjar: LeBron James (Mia) 2,053,011; Amar’e Stoudemire (NYK) 1,674,995; Kevin Garnett (Bos) 1,407,601; Paul Pierce (Bos) 804,838; Chris Bosh (Mia) 571,734; Carlos Boozer (Chi) 504,610; Danilo Gallinari (NYK) 390,658; Josh Smith (Atl) 387,843; Luol Deng (Chi) 291,118; Danny Granger (Ind) 279,522.

Bakverðir: Dwyane Wade (Mia) 2,048,175; Derrick Rose (Chi) 1,914,996; Rajon Rondo (Bos) 1,587,297; Ray Allen (Bos) 890,951; Raymond Felton (NYK) 397,301; John Wall (Was) 337,368; Gilbert Arenas (Orl) 312,903; Brandon Jennings (Mil) 301,225; Jamal Crawford (Atl) 246,130, Joe Johnson (Atl) 224,571.

Miðherjar: Dwight Howard (Orl) 2,099,204; Shaquille O’Neal (Bos) 906,284; Joakim Noah (Chi) 432,127; Andrew Bogut (Mil) 301,896; Al Horford (Atl) 287,083; Roy Hibbert (Ind) 250,614; Andrea Bargnani (Tor) 215,123; Brook Lopez (NJ) 166,844; JaVale McGee (Was) 146,474; Ben Wallace (Det) 113,443.

 
Mynd: Paul PIerce er ekki uppáhald allra en hann er ásamt liðsfélögum næstvinsælustu leikmenn austursins.
 
Fréttir
- Auglýsing -