spot_img
HomeFréttirMikið lagt á ungan mann

Mikið lagt á ungan mann

 Fáir kannast við nafnið Thomas Robinson í körfuboltaheiminum, enda strákurinn aðeins 19 ára gamall unglingur að spila körfubolta fyrir Kansas Jayhawks í háskólaboltanum.  Síðasti mánuður hefur verið drengnum óbærilega erfiður þar sem allir þeir sem komið hafa að uppeldi hans eru látnir. 
 Í lok desember lést amma stráksins og nú í janúar með aðeins 5 daga millibili dó afi hans og svo úr hjartaáfalli lést móðir hans.  Thomas hefur hinsvegar haft liðsfélaga sína og nánast allan Kansas háskólann sér til stuðnings, en stuðningsmenn Kansas eru sagði einir þeir bestu í háskólaboltanum.  Meira segja NCAA (Körfuknattleikssamband Háskólaboltans) sem hefur gríðarlega strangar reglur varðandi gjafir til leikmanna beygði frá reglunni með því að leyfa háskólanum að borga  flug fyrir allt liðið í útför leikmannsins.  
 
Í gærkvöldi spiluðu svo Kansas Jayhawks sinn fyrsta leik eftir að móðir drengsins var jarðsett.  Eftir að hafa byrjað nokkuð brösulega endaði Thomas Robinson með 17 stig og hirti 9 fráköst.  
 
"Mamma hefði ekki viljað sjá mig sitja og vorkenna sjálfum mér.  Fyrir leikinn þá fannst mér að liðsfélagar, stuðningsmenn Kansas og í raun allir þeir sem hafa sýnt mér samhug eiga þessa frammistöðu inni frá mér." sagði Robinson eftir leikinn í gær en leikurinn var einmitt gegn erkifjendum og nágrönnum þeirra, Kansas State. 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -