Skallagrímskonur komust um helgina upp í 4. sæti í 1. deild kvenna með öruggum 88-42 sigri á KFÍ. Liðin eru nú jöfn í 4.-5. sæti deildarinnar, bæði með 8 stig, en Skallagrímur hefur betur innbyrðis eftir stórsigur helgarinnar.
Stjarnan trónir á toppi deildarinnar með 16 stig og hafa aðeins tapað einum deildarleik þetta tímabilið en fast á hæla þeira með 12 stig eru Valskonur í 2. sæti deildarinnar.




