spot_img
HomeFréttirKeflavíkursigur gegn KR

Keflavíkursigur gegn KR

 Keflavík sigraði KR í fyrstu umferða A riðlis í kvennaboltanum í kvöld. 79-75 var lokastaða leiksins í miður fallegum körfuknattleik þar sem Keflavík hafði undirtökin í leiknum. 
Í fyrri hálfleik var Keflavík að spila fanta góða 3-2 svæðisvörn sem virtist vefjast KR liðinu gríðarlega mikið.  Þær áttu í mesta basli með að koma boltanum í körfuna og á meðan gengu heimastúlkur á lagið.  Ekki hjálpaði að erlendi leikmaður þeirra Chazny Morris hafði ekki gert stig í fyrri hálfleik. Hún hinsvegar vaknaði til lífsins í þeim seinni og skoraði þá 19 stig. 
 
Hjá Keflavík var að vanda Jackie Adamshick í algerum sérflokki með 34 stig og 15 fráköst. Sigurinn var verðskuldaður en þessi lið eru gríðarlega jöfn að styrkleika sem stendur og óhætt að segja að þau munu verða í slagsmálum um þá titla sem í boði eru. 

Heildarskor:

 
Keflavík: Jacquline  Adamshick 34/15 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 18/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 14/12 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Pálína Gunnlaugsdóttir 9/6 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 2/4 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 2, Aníta Eva Viðarsdóttir 0, Telma Lind Ásgeirsdóttir 0, Hrönn Þorgrímsdóttir 0, Marín Rós Karlsdóttir 0, Árný Sif Gestsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0.

KR: Margrét Kara Sturludóttir 21/5 fráköst, Chazny Paige  Morris 19/9 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 11/9 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 7/6 fráköst, Helga Einarsdóttir 4/5 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 4/4 fráköst, Svandís Anna Sigurðardóttir 0, Sólveig Helga  Gunnlaugsdóttir 0, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0.

Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson

 
 
Fréttir
- Auglýsing -