spot_img
HomeFréttirAnnað tap TCU í röð, nú gegn AFA.

Annað tap TCU í röð, nú gegn AFA.

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu sínum öðrum leik í Mountain West riðlinum þegar Air Force Falcons sigraði liðið á laugardaginn síðastliðinn. TCU sem var taplaust í riðlinum fram að þar síðasta leik hefur nú tapað tveimur leikjum í röð og í bæði skiptin gegn botnliðum riðilsins, fyrst gegn New Mexico á miðvikudaginn og svo Falcons á laugardag.
TCU sem leiddi í hálfleik með 11 stigum og voru sterkari aðilinn nær allan tíman misstu leikinn frá sér á lokamínútunum og Falcons unnu fimm stiga sigur 60-55.
 
Helena skoraði 8 stig, tók 1 frákast og gaf 6 stoðsendingar á þeim 33 mínútum sem hún spilaði en hún fór útaf með 5 villur.
 
Næsti leikur liðsins er á laugardaginn næsta gegn San Diego State á heimavelli TCU.

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -