Haukur Páls og félagar í Maryland unnu góðan 74-63 sigur á liðið Georgia Tech í gærkvöldi þar sem að liðsfélagi Hauks, Jordan Williams, var með myndarlega tvennu þegar hann skoraði 21 stig og tók 15 fráköst. Er þetta þriðji leikurinn sem Maryland vinnur í röð.
Haukur spilaði 3 mínútur í leiknum og náði ekki að skora en skilaði einu frákasti fyrir Maryland en liðið situr nú í 6. sæti deildarinnar með hlutfallið 4-3 og eru með 14-7 í heildina.
Maryland mætir næsti liði Duke sem situr í efsta sæti deildarinnar og er sá leikur á miðvikudaginn 2. febrúar á heimavelli Maryland.




