Grindvíkingar hafa loksins fundið nýjan bandarískan leikmann að nafni Kevin Sims. Kevin spilar stöðu leikstjórnanda og var áður í Tulane háskólanum. Hann er fæddur 1988 og er 178 sm að hæð. www.umfg.is greinir frá.
Grindvíkingar hafa undanfarið leikið án bandarísks leikmanns en mæta með Sims í Breiðholtið á fimmtudag þegar þeir heimsækja ÍR.
Síðast stóð til að Bandaríkjamaðurinn Brock Gillespie myndi leika með Grindavík en sá hætti við komuna til landsins og því er Sims nú mættur á Klakann.





