HomeFréttirLeikir dagsins: Bikarslagur í Ljónagryfjunni

Leikir dagsins: Bikarslagur í Ljónagryfjunni

 
Njarðvík tekur á móti Keflavík í undanúrslitum Poweradebikarkeppni kvenna í kvöld kl. 19:15 í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Það lið sem hefur sigur úr býtum mætir annað hvort KR eða Hamri í úrslitum bikarkeppninnar. Á morgun mætast svo KR og Hamar í DHL-Höllinni þegar boðið verður upp á tvíhöfða því strax að kvennaleiknum loknum mætast KR og Tindastóll í undanúrslitum í karlaflokki.
Fjórir leikir eru á dagskránni í 1. deild karla í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15. Fátt annað en ómögulegt kraftaverk getur komið í veg fyrir að Þór Þorlákshöfn vinni deildina enda eru liðsmenn Benedikts Guðmundssonar taplausir með 26 stig á toppnum. Þór Akureyri á veika von á því að vinna deildina en þá dugir ekkert annað fyrir norðanmenn en að vinna alla fjóra leiki sína sem eftir eru og Þór Þorlákshöfn þarf að tapa síðustu fimm leikjum sínum.
 
Ef þannig vildi til að Þórsliðin myndu verða jöfn að stigum gildir innbyrðisviðureignin á milli liðanna. Þau eiga reyndar eftir að spila seinni deildarleikinn sín á milli en þann leik þyrftu Akureyringar þá að vinna með 25 stig mun. Eins og áður hefur komið fram, ómögulegt kraftaverk þarf til.
 
Leikir kvöldsins í 1. deild karla allir kl. 19:15:
 
FSu-Höttur
Þór Þorlákshöfn-Valur
Ármann-Breiðablik
Skallagrímur-Þór Akureyri
 
Þá eru einnig þrír leikir í 2. deild karla í kvöld:
 
19:00 Reynir Sandgerði – Hekla
20:00 ÍG-Smári
20:15 Álftanes-ÍBV
 
Fréttir
- Auglýsing -