HomeFréttirBenedikt: Sakna þess að vera ekki í úrslitakeppni

Benedikt: Sakna þess að vera ekki í úrslitakeppni

 
,,Þetta var á stefnuskránni þegar ég tók við liðinu, í raun var markmiðið frá degi eitt að fara með þessa stráka upp og vera þar,” sagði Benedikt Guðmundsson í samtali við Karfan.is í kvöld en Þór úr Þorlákshöfn tryggði sér sæti í Iceland Express deild karla á næstu leiktíð með 20 stiga sigri á Valsmönnum, 99-79.
,,Við ætlum að vinna alla þessa leiki sem eftir eru í deildinni og það hefur alltaf verið markmiðið og við höfum ekki spáð mikið í hvað aðrir eru að gera,” sagði Benedikt en verður erfitt að halda leikmönnunum við efnið nú þegar úrvalsdeildarsætið er í höfn og enn fjórir leikir eftir?
 
,,Það kemur í ljós en við líðum ekkert kæruleysi þó þessu sé náð, við ætlum að æfa af krafti og koma einbeittir í leikina sem eftir eru því tapleikurinn er alltaf jafn leiðinlegur.”
 
Þór hefur unnið 14 deildarleiki í röð í 1. deild karla þetta tímabilið og Benedikt hefur staðið í stórræðum síðustu leiktímabil, í fyrra gerði hann KR konur að Íslandsmeisturum og leiktíðina þar á undan gerði hann karlalið félagsins að Íslandsmeisturum. Nú er hann sigurvegarinn í 1. deild karla og því verður hann ekki í neinni úrslitakeppni þetta tímabilið, skrýtin tilfinning?
 
,,Ég viðurkenni að ég sakna þess að taka ekki þátt í úrslitakeppninni, því miður er ekki úrslitakeppni í 1. deild fyrir sigurvegarann en þetta er skemmtilegasti tíminn í boltanum. Við tökum auðvitað úrvalsdeildarsætið og því hafa deildarleikirnir í vetur verið allir sem einn úrslitaleikir. Það er leiðinlegt að vera ekki vakinn og sofinn yfir hamaganginum í úrslitakeppninni því þetta er tíminn þar sem maður gerir ekkert annað en að spá í hlutunum, bæði fyrir og eftir leiki en við sleppum þetta árið,” sagði Benedikt sem kvaðst ekki vera farinn að huga að næsta tímabili.
 
,,Ég verð með liðið áfram næsta vetur svo það kemur bara í ljós hvernig hópurinn okkar mun þróast í sumar, það er verkefni seinni tíma.”
 
Af þessu tilefni, Þórsurum og Benna til heiðurs látum við hér fylgja með tengil á uppáhalds lagið hjá þessum sigursæla þjálfara en það er grínarinn sálugi Sam Kinnison sem fer hér á kostum.
Ljósmynd/ Tomasz
 
Fréttir
- Auglýsing -