Heil umferð fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Íslendingaliðin Sundsvall, Solna og Uppsala unnu öll sína leiki. Með sigrinum í kvöld eru Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson með 42 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan LF Basket sem einnig unnu sína viðureign í kvöld.
Sundsvall 87-68 Södertalje
Jakob Örn skoraði 15 stig í leiknum fyrir Sundsvall, tók 3 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal 2 boltum. Hlynur var með 11 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar.
Solna 65-51 ecoÖrebro
Logi var ekki í liði Solna í kvöld en stigahæstur hjá Víkingunum var Adam Constantine með 17 stig og heil 22 fráköst.
Uppsala 95-68 08 Stockholm
Helgi Már Magnússon var með 11 stig og 7 fráköst





