Í dag eru tveir stórleikir á dagskrá í Poweradebikarnum en um er að ræða undanúrslitaleiki karla og kvenna. Báðir leikir dagsins eru sýndir í beinni útsendingu á RÚV.
KR – Hamar í undanúrslitum kvenna kl. 14.00
KR – Tindastóll í undandúrslitum karla kl. 16.00
Leikirnir eru einnig í beinni tölfræðilýsingu á kki.is og þá verður Karfan.is að sjálfsögðu á staðnum og flytur ykkur fréttirnar um leið og þær gerast.
Í gær komst Keflavík í úrslitaleikinn í Poweradebikar kvenna og á sunnudaginn kemur í ljós hvort það verða Haukar eða Grindavík sem komast í úrslitaleik karla. Sá leikur hefst kl. 19.15 annað kvöld og fer fram á Ásvöllum.





