HomeFréttirÚrslit: KR og Keflavík mætast í bikarúrslitum

Úrslit: KR og Keflavík mætast í bikarúrslitum

 
Það verða kvennalið KR og Keflavíkur sem munu leika til bikarúrslita í Poweradebikarkeppninni þetta árið en KR varð rétt í þessu fyrsta lið landsins til þess að leggja Hamar þetta tímabilið. Um magnaðan spennu- og baráttuleik var að ræða þar sem Helga Einarsdóttir reið baggamuninn á lokasprettinum er hún skoraði og fékk villu að auki.
Lokatölur í Vesturbænum voru 65-60 KR í vil þar sem Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í liði KR með 25 stig, 12 fráköst og 3 stoðsendingar. Hjá Hamri var Jaleesa Butler með 23 stig og 12 fráköst og 6 varin skot.
 
Nánar um leikinn síðar…
 
Mynd/ KR-ingar fögnuðu vel og innilega í leikslok.
 
Fréttir
- Auglýsing -