Tindastóll með Hayward Fain í broddi fylkingar gerði heiðarlega tilraun til þess að koma sér í bikarúrslit en KR-ingar með óflekkaðan heimavöllinn áttu meira bensín síðustu metrana og höfðu sigur, 81-69. Stóru strákarnir Fannar Ólafsson, Finnur Magnússon og Jón Orri Kristjánsson fóru hamförum á lokasprettinum, átu öll fráköst sem í boði voru og tryggðu KR fleiri sóknir sem í raun skildi liðin að í dag… já, og Marcus Walker að sjálfsögðu. Eins og skugginn var hann límdur á boltamenn gestanna og skapaði mikinn usla, frábær varnarmaður hér á ferðinni og vafalaust fljótasti maðurinn í íslenska boltanum þetta tímabilið.
Skagfirðingar mættu með læti að norðan og áttu stúkuna í DHL-Höllinni og það kunnu leikmenn Tindastóls að meta og leiddu 21-24 að loknum fyrsta leikhluta. Fannar Ólafsson miðherji KR haltraði af velli í fyrsta leikhluta en lét það ekki aftra sér og kom inn aftur ekki löngu síðar í leiknum en hann var samt augljóslega ekki í 100% standi í dag.
Brynjar Þór Björnsson var ógnandi hjá KR á fyrstu andartökum leiksins en svo kom upp atvik sem snöggkældi kappann. Brynjar átti í samskiptum við Tindastólsstúkuna og Kristinn Óskarsson, einn dómara leiksins, vildi eiga við hann orð fyrir vikið. Þeim samræðum lauk með tæknivíti á Brynjar og því kominn með þrjár villur í fyrsta leikhluta og hafði sig ekki mikið í frammi eftir það. Hayward Fain lokaði svo fyrstu tíu mínútunum með flautukörfu og Stólarnir leiddu 21-24.
Varnarleikurinn var allsráðandi hjá báðum liðum en Hayward Fain hélt áfram að leika fantavel fyrir gestina og að sama skapi þeyttist Marcus Walker eins og formúlubíll um völlinn hjá KR-ingum. Stólarnir leiddu í hálfleik 36-38 þar sem Hayward Fain var með 20 stig í liði gestanna en Hreggviður Magnússon, sem kom sprækur af bekknum í fyrri hálfleik, var með 8 stig sem og Marcus Walker.
Eftir 25 mínútna leik höfðu aðeins fimm leikmenn Tindastóls komist á blað en níu hjá KR og heimamenn að fá töluvert meira framlag frá sínum djúpa bekk. Eitthvað voru menn rólegri í vörninni í þriðja leikhluta því eftir sex mínútna leik í síðari hálfleik höfðu aðeins tvær villur verið dæmdar.
Skyttan Friðrik Hreinsson gerði sín fyrstu stig í leiknum þegar hann kom Tindastól í 49-52 en Jón Orri Kristjánsson jafnaði metin í 52-52 er hann skoraði og fékk villu að auki. Staðan var svo jöfn 54-54 fyrir lokasprettinn þar sem Skarphéðinn Freyr Ingason vann boltann af Tindastólsmönnum á lokasekúndu þriðja leikhluta og skoraði. Staðan jöfn og spennandi lokasprettur framundan.
Í fjórða leikhluta pressuðu KR-ingar stíft og hátt uppi á vellinum og reyndist það gestunum dýrkeypt sem oftar en ekki létu varnarmenn KR komast inn í sendingar eða hreinlega grýttu boltanum frá sér.
Bæði lið glímdu við nokkur villuvandræði en þegar stóru strákarnir hjá KR fóru að taka við sér seig á ógæfuhlið gestanna. Fannar, Finnur og Jón Orri fóru hreinlega hamförum í báðum teigunum og tók KR 23 sóknarfráköst í dag! Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka hafði KR náð sjö stiga forystu, 70-63 og í ljósi leiksins fram að þessu var þessi munur einfaldlega of mikill, virkaði eins og 3-0 staða í knattspyrnu og 10 mínútur til leiksloka, nánast ógerlegt.
Þetta stóð heima, Stólarnir höfðu ekki bensín á tanknum til að komast aftur upp að hlið KR og vendipunkturinn reyndist framlag stóru strákanna í heimaliðinu. Lokatölur 81-69 í miklum baráttuslag sem oft var ekki fallegur en spennandi var hann.
Hrafn Kristjánsson er því kominn með bæði KR liðin í bikarúrslit og það ræðst á morgun hvort Haukar eða Grindavík verði andstæðingar karlaliðs KR í Laugardalshöll þegar leikið verður til úrslita um Poweradebikarinnar.
Heildarskor:
KR: Marcus Walker 16/5 fráköst/6 stolnir, Finnur Atli Magnússon 12/6 fráköst, Pavel Ermolinskij 11/14 fráköst/12 stoðsendingar/5 stolnir, Brynjar Þór Björnsson 10/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 10/4 fráköst, Fannar Ólafsson 8/9 fráköst, Hreggviður Magnússon 8, Ólafur Már Ægisson 3, Skarphéðinn Freyr Ingason 2, Páll Fannar Helgason 1, Martin Hermannsson 0, Ágúst Angantýsson 0.
Tindastóll: Hayward Fain 32/14 fráköst, Dragoljub Kitanovic 25, Sean Kingsley Cunningham 5/6 fráköst, Friðrik Hreinsson 4/5 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 2, Helgi Freyr Margeirsson 1, Halldór Halldórsson 0, Hreinn Gunnar Birgisson 0, Svavar Atli Birgisson 0, Ingvi Rafn Ingvarsson 0, Jónas Rafn Sigurjónsson 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Björgvin Rúnarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson
Myndir og umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]





