HomeFréttirÁgúst: Gróa tók fleiri sóknarfráköst en allt Hamarsliðið

Ágúst: Gróa tók fleiri sóknarfráköst en allt Hamarsliðið

 
,,Það hljómar eins og maður sé mjög tapsár og sé að kenna öðrum um en sjálfum mér og liðinu en staðreyndin er sú að ekki er hægt að horfa fram hjá þeim mistökum sem áttu sér stað í lok fyrsta og annars leikhluta. KR skorar þarna sex stig vegna mistaka á ritaraborðinu og það í fyrsta leiknum í vetur þar sem er eftirlitmaður á leik hjá okkur. Þetta var samt ekki eina ástæðan fyrir því að við töpuðum leiknum,” sagði Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars eftir ósigur Hvergerðinga gegn KR í undanúrslitum kvenna í Poweradebikarkeppninni.
Engum þeim sem fylgdist með leiknum duldist það að á ritarborðinu í leiknum gekk ekki allt sem skyldi og var Ágúst eins og lesa má hér að ofan afar vonsvikinn með framvindu mála.
 
,,KR fór illa með okkur í fráköstunum og taka 22 sóknarfráköst og það þýðir 22 fleiri skot og fyrir vikið vorum við mjög mikið í vörn,” sagði Ágúst sem kemur aftur með Hamarskonur í DHL-Höllina næsta miðvikudag þegar liðin mætast í Iceland Express deildinni.
 
Ætti þá bikartapið í dag ekki að vera veglegt vatn á myllu liðsins?
,,Við leggjum þetta ekki svona upp, við tökum bara einn leik í einu og vissum það alveg fyrirfram í dag að KR væri með mjög sterkt lið þó Hildur og Signý hafi ekki verið að spila jafn vel og við vitum að þær gæta þá er KR samt með rosalegan varnarmúr. Guðrún Gróa var svo með 11 sóknarfráköst í dag, fjórum meira en allt Hamarsliðið,” sagði Ágúst og ljóst að Hvergerðingar muni fara rækilega yfir frákastamálin sín áður en kemur að deildarleiknum næsta miðvikudag.
 
Leiknum í dag lauk með 65-60 sigri KR sem varð fyrsta liðið í vetur til að leggja Hamar á yfirstandandi tímabili.
 
Fréttir
- Auglýsing -