HomeFréttirHelena kvaddi með látum: Skilaði af sér þrennu

Helena kvaddi með látum: Skilaði af sér þrennu

 
Helena Sverrisdóttir hefur nú leikið sinn síðasta leik fyrir TCU en sá leikur reyndist vera tapleikur gegn Oral Roberts skólanum í NIT mótinu. Lokatölur leiksins voru 74-78 Oral Roberts í vil og Helena notaði tækifærið og markaði fleiri söguleg spor í minningabók TCU.
Helena landaði þrennu í leiknum sem er aðeins sú þriðja í röðinni í sögu skólans en hún gerði 16 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar í leiknum. Helena er nú næstfrákastahæsti leikmaðurinn í sögu skólans. Helena og Sandora Irvin eru einu tveir leikmenn skólans sem landað hafa þrennu, Helena á tvær þeirra!
 
Eftir leik í nótt sat Helena ásamt liðsfélaga sínum fyrir svörum og á þessum blaðamannafundi fór Jeff Mittie, þjálfari TCU, fögrum orðum um Helenu.
 
Síðustu fjögur leiktímabil hafa verið mögnuð hjá Helenu sem fljótt skipaði sér í sveit lykilmanna hjá TCU og verður fróðlegt að sjá hver næstu skref hennar í körfuboltanum verða.
Fréttir
- Auglýsing -