Í gær hófst 64 liða keppni í Bandaríska háskólaboltanum og eins og öll ár þá hafa strax litið dagsins ljós óvænt úrslit þar sem að minni spámenn eru að senda þá stærri í sumarfríið.
Ohio State, Duke, Pittsburg og Kansas þykja vera sigurstranglegust í keppninni í ár en þau voru sett í efsta styrkleikaflokk (top rank) ef svo sé hægt að segja. Hinsvegar gerist það afar sjaldan að þau lið sem eru sett í þennan flokk endi öll í "Final four"
Í gær voru það Morehead State University sem komu á óvart og slógu út Louisville mjög óvænt. Richmond háskólinn fylgdi svo því dæmi eftir og sló út Vanderbilt sem einnig voru taldir líkt og Louisville töluvert sigurstranglegri í þeirri viðureign.
BYU háskólinn hefur komið skemmtilega á óvart í vetur og er það mest fyrir tilstilli Jimmer Fredette. Ungur leikstjórnandi á sínu síðasta ári og t.a.m skoraði hann nú ekki fyrir löngu 52 stig í einum og sama leiknum. Í liði hans er svo fulltrúi okkar Íslendinga en hann heitir Logan Magnússon og er einn af þeim svokölluðu vestur Íslendingum. BYU komst áfram í gær með sigri á Wofford háskólanum og munu þeir næst mæta liði Gonzaga.
Háskólaboltinn er sýndur í á ESPN America sem hægt er að kaupa hjá Vodafone og Símanum. Einnig er hægt að fylgjast með öllum leikjunum beint á netinu. Alger hrein unun að fylgjast með þessum leikjum þar sem lang flestir þeirra ráðast ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiksins.
MYND: Kemba Walker spilar fyrir UConn háskólan og er talinn einn af heitustu bitunum sem munu fara í NBA á næsta tímabili.





