HomeFréttirKeflavík skólaði ÍR til í síðari hálfleik og leiðir einvígið 1-0

Keflavík skólaði ÍR til í síðari hálfleik og leiðir einvígið 1-0

 
Keflavík leiðir 1-0 gegn ÍR í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla eftir öruggan 115-93 sigur í fyrsta leik liðanna í Toyota-höllinni. Liðin mætast aftur á mánudagskvöld þar sem Keflvíkingar geta tryggt sér sæti í undanúrslitum en ÍR sigur kallar á oddaleik í Toyota-höllinni. Þrír leikmenn Keflavíkur gerðu 21 stig eða meira í leiknum en Keflvíkingar skrúfuðu upp hitann í síðari hálfleik og hrintu gestunum sínum út úr vel flestum aðgerðum.
Keflvíkingar pressuðu ÍR hátt uppi á velli frá fyrstu mínútu leiksins og náðu fljótt undirtökunum, 15-11 eftir þrist frá vélbyssunni Magnúsi Þór Gunnarssyni. Ísafjarðartröllið Sigurður Gunnar Þorsteinsson gerði vel í teignum fyrir Keflavík, skóflaði mönnum til og skapaði góðar smugur fyrir bakverðina og frákastaði vel ef þeir kláruðu ekki dæmið. Kelly Beidler klóraði í bakann 23-18 með sínum öðrum þrist í fyrsta leikhluta og Halldór Örn Halldórsson fékk þá það hlutverk að flækjast aðeins í Beidler, nældi sér í þrjár villur á nýju Íslandsmeti. Reyndar varð einhver á vellinum að taka það að sér að fá villur þar sem liðunum báðum leið betur í sókn en vörn.
 
Keflvíkingar leiddu 28-22 að loknum fyrsta leikhluta þar sem Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 8 stig hjá Keflvíkingum og sömuleiði Beidler í liði ÍR.
 
Sigurður Gunnar fékk stutta hvíld undir lok fyrsta leikhluta og var mættur sprækur í þann annan, opnaði með þrist og Keflavík leiddi 31-22 en þá tóku gestirnir við sér og náðu loks að jafna metin 37-37 þar sem þeim tókst að finna smá neista í vörninni. Keflvíkingar voru ekki lengi að slíta sig frá gestum sínum að nýju og komust í 51-42 þar sem Ciric setti tvo sterka þrista fyrir heimamenn.
 
Allt benti til þess að Keflvíkingar færu með tíu stiga forskot inn í hálfleikinn en Kelly Beidler setti þá flautuþrist, og það dónalegan, spjaldið ofaní og staðan 54-47 í hálfleik. Sigurður Gunnar var með 13 stig og 5 fráköst í hálfleik hjá Keflavík en Kelly Beidler með 14 stig í liði ÍR.

 
Þriðji leikhluti var nokkuð harðari en allur fyrri hálfleikur en Keflvíkingar sátu við stýrið. James Bartolotta minnkaði muninn fyrir ÍR í 62-53 með þrist en Sveinbjörn Claessen fékk þar strax á eftir sína fjórðu villu í liði ÍR-inga. Keflvíkingar léku stíft í leikhlutanum, vörnin var þétt og heimamenn komust upp með ákveðna hörku sem ÍR-ingar létu fara í taugarnar á sér.
 
Hörður Axel Vilhjálmsson tók góðar rispur í þriðja leikhluta og vann vel allan leikinn og staðan fyrir fjórða og síðasta leikhluta 86-71 Keflavík í vil.
 
Ciric lék lausum hala í upphafi fjórða leikluta og raun Keflavíkurliðið allt. ÍR átti aldrei séns í fjórða leikhluta og voru með margt á hornum sér þar sem Sveinbjörn Claessen fékk m.a. dæmt á sig tæknivíti og í sömu andrá fór Eiríkur Önundarson af velli með fimm villur. Keflvíkingar kláruðu dæmið svo 115-93 og leiða því einvígið 1-0 og ljóst að Breiðhyltingar verða að gyrða í brók ef þeir ætla sér ekki í sumarfrí næsta mánudag.
 
Þeir Hörður Axel, Ciric og Sanders voru stigahæstir hjá Keflavík í kvöld en Sigurður Gunnar Þorsteinsson skilaði einnig flottu dagsverki í teignum. Beidler, Sovic og Bartolotta voru atkvæðamestir í liði ÍR í kvöld en höfðu ekki haus í að klára heilan leik með Keflavík að þessu sinni. Keflvíkingar fara síðan á erfiðan útivöll á mánudag en ÍR hefur unnið síðustu fimm heimaleiki sína í röð.
 
Byrjunarliðin:
 
Keflavík: Hörður Axel Vilhjálmsson, Thomas Sanders, Magnús Þór Gunnarsson, Andrija Ciric, Sigurður G. Þorsteinsson.
ÍR: James Bartolotta, Níels Dungal, Sveinbjörn Claessen, Kelly Beidler, Nemanja Sovic
 
Heildarskor:
 
Keflavík: Andrija Ciric 24/7 fráköst, Thomas Sanders 22/11 fráköst/5 stoðsendingar, Hörður Axel Vilhjálmsson 21/8 fráköst/12 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 17/6 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 9/4 fráköst, Jón Nordal Hafsteinsson 7, Gunnar Einarsson 5, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Gunnar H. Stefánsson 3, Halldór Örn Halldórsson 2, Almar Stefán Guðbrandsson 0, Kristján Tómasson 0.
 
ÍR: Kelly Biedler 23/5 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Nemanja Sovic 22/8 fráköst, James Bartolotta 22, Níels Dungal 9/4 fráköst, Sveinbjörn Claessen 7, Hjalti Friðriksson 4, Eiríkur Önundarson 3, Davíð Þór Fritzson 2, Tómas Aron Viggóson 1, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Þorgrímur Emilsson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson
 
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski [email protected]
 
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson[email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -