Ingi Þór Steinþórsson á síður von á því að leikstjórnandinn Sean Burton verði með Snæfell þegar liðið mætir Haukum í annarri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla næsta mánudag. Burton tognaði á ökkla í fyrri viðureign liðanna í gær þegar skammt var liðið af leiknum og kom ekki meira við sögu.
,,Eins og staðan er núna spilar hann ekki á mánudag en ég vona samt að hann geti verið með, það eru í raun samt minna en helmingslíkur á því að hann verði með í Hafnarfirði,“ sagði Ingi Þór en Sean meiddist í gærkvöldi í upphafi leiks þegar hann var í miðri gabbhreyfingu.
Minnugir vita að Burton meiddist einnig í úrslitakeppninni í fyrra í oddaleik KR og Snæfells í undanúrslitum. Þetta er tvennt ólíkt, meiðslin þá og nú samkvæmt Inga Þór. ,,Í fyrra á móti KR þá reif hann liðbönd í fæti og var ekki meira með en nú er þetta snúinn ökkli,“ sagði Ingi en við spurðum hvort það gæti orðið þörf á því að fá inn nýjan leikstjórnanda. ,,Það síðasta sem við gerum er að hugsa um einhvern nýjan leikmann,“ svaraði Ingi heldur sagði hann að nú væru öll trikkin í meiðslabókinni nýtt.
Í fyrra þegar Hlynur Bæringsson glímdi við meiðsli var m.a. notast við smjörklípur og fleira þegar unnið var að því að hafa hann góðan í bikarúrslitum. Burton ætti því að vera í góðum höndum bæði hvað varðar hefðbundnar og óhefðbundnar aðferðir í meðhöndlun meiðsla.
Ljósmynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Burton borinn af velli með snúinn ökkla í gær.





