Tveir leikir fara fram í kvöld í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla þar sem KR og Grindavík geta tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Bæði liðin höfðu sigur í fyrsta leiknum sínum á fimmtudagskvöld en tvo sigra þarf til þess að komast upp úr 8-liða úrslitum.
Leikir dagsins:
1. deild kvenna – úrslit
16:30 Stjarnan-Valur (fyrsti leikur, vinna þarf tvo leiki til að vinna sæti í IEX deild kvenna)
19:15 Stjarnan 0-1 Grindavík
19:15 Njarðvík 0-1 KR
Þá eru fleiri leikir í dag í yngri flokkum og neðri deildum, sjá heildaryfirlit hér.
Mynd/ [email protected]– Það verður fjör í kvöld.





