Deilarmeistarar Stjörnunnar mættu ofjörlum sínum í dag þegar fyrsti leikur í úrslitaviðureign Garðbæinga og Vals fór fram í 1. deild kvenna. Valsmenn mættu með nýjan erlendan leikmann í Ásgarð en sú heitir Krystal Ellis og fann engan jafnoka sinn í dag og lauk því leik með 32 stig, 12 fráköst, 5 stoðsendingar og 8 stolna bolta. Lokatölur í Ásgarði voru 57-83 Valskonum í vil sem leiða nú einvígið 0-1 og eru því aðeins einum sigri frá því að endurheimta sæti sitt í Iceland Express deild kvenna en Valur féll einmitt í fyrra niður í 1. deildina.
Valskonur mættu ákveðnari til leiks vopnaðar nýjum leikmanni að nafni Krystal Ellis sem kom til liðs við Hlíðarendakonur fyrr í vikunni. Ellis var fljót að stimpla sig inn og var með 12 stig eftir fyrsta leikhluta þar sem Valskonur leiddu 14-23 en Stjarnan beit aðeins frá sér undir lok leikhlutans eftir að hafa verið nokkuð lengi í gang.
Heiðrún Hauksdóttir var ófeimin við að skjóta á Valskörfuna en skotin vildu ekki niður, Hrafnhildur Sævarsdóttir opnaði loks annan leikhluta fyrir bæði lið eftir tveggja mínútna leik í öðrum leikhluta er hún setti niður þrist og kom Val í 14-26.
Valskonur beittu svæðisvörn sem Stjarnan réð illa við og bláar fóru oft ansi illa með boltann og voru með 19 tapaða bolta í hálfleik. Valskonur leiddu því í hálfleik 24-38 þar sem Bára Hálfdánardóttir var komin með 7 stig í liði Stjörnunnar en Krystal Ellis var með 15 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar í liði Vals.

Krystal Ellis hélt áfram að hrella Garðbæinga í þriðja leikhluta og gerði 13 stig í leikhlutanum og var komin með 28 stig eftir 30 mínútna leik. Staðan að þriðja leikhluta loknum var 38-62 Valskonum í vil og á brattann að sækja hjá Stjörnunni í síðasta leikhlutanum.
Eftir fyrstu mínúturnar í fjórða leikhluta var staðan orðin 49-75 Val í vil og ljóst í hvað stefndi svo í raun var einungis beðið eftir lokatölum sem reyndust 57-83. Amanda Andrews leikmaður Stjörnunnar hefur ekki verið með Garðbæingum síðasta mánuðinn eða svo sökum meiðsla og ljóst að Stjörnukonur söknuðu hennar sárlega í dag.
Krystal Ellis átti völlinn í dag hjá Val með 32 stig, 12 fráköst, 8 stolna bolta og 5 stoðsendingar. Henni næst í liði Vals var Berglind Ingvarsdóttir með 17 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar. Hjá Stjörnunni var Bára Hálfdánardóttir með 16 stig og 3 fráköst.
Næsti leikur liðanna er í Vodafonehöllinni á þriðjudag kl. 20:00 þar sem Valskonur geta með sigri tryggt sér sæti í úrvalsdeild en ef Stjarnan vinnur verður oddaleikur í Garðabæ föstudaginn 25. mars.
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski – [email protected]
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson – [email protected]





