HomeFréttirÚrslit: KR sló út Njarðvík og Stjarnan landaði oddaleik

Úrslit: KR sló út Njarðvík og Stjarnan landaði oddaleik

 
Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld þar sem Stjörnumenn lögðu Grindavík og tryggðu sér oddaleik og KR-ingar lögðu Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni og unnu því einvígið 2-0 og eru fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Stjarnan 91 – 74 Grindavík
Renato Lindmets gerði 29 stig og tók 5 fráköst hjá Stjörnunni og Justin Shouse bætti við 23 stigum og 7 stoðsendingum. Hjá Grindavík var Páll Axel Vilbergsson með 27 stig og 3 fráköst og Ryan Pettinella bætti við 15 stigum og 13 fráköstum.
Grindavík 1-1 Stjarnan – oddaleikur í Grindavík á miðvikudag
 
Njarðvík 80-96 KR
Marcus Walker gerði 21 stig í liði KR, Brynjar Þór Björnsson bætti við 20 stigum og Pavel Ermolinskij var með 16 stig, 18 fráköst og 9 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Jóhann Árni Ólafsson með 19 stig en þeir Giordan Watson og Jonathan Moore voru báðir með 18 stig og Watson auk þess 10 stoðsendingar.
KR 2-0 Njarðvík
 
Nánar síðar…
 
 
Fréttir
- Auglýsing -