Stjörnumenn tryggðu sér í kvöld oddaleik í rimmu sinni gegn Grindavík í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla. Stjarnan skellti Grindavík 91-74 í öðrum leik liðanna og því verður oddaleikur í Röstinni næsta miðvikudag. Renato Lindmets var beittur hjá Garðbæingum í kvöld með 29 stig og 5 fráköst en Páll Axel Vilbergsson gerði 27 stig í liði gestanna.
Fannar Helgason opnaði leik kvöldsins með þriggja stiga körfu fyrir Garðbæinga en þá var röðin komin að Páli Axeli Vilbergssyni sem gerði tíu fyrstu stig Grindvíkinga í leiknum sem fljótt komust í 5-10. Næstu tvö stig Grindvíkinga komu svo eftir stolinn bolta sem lauk með troðslu frá Ólafi Ólafssyni og gestirnir líflegir í upphafi leiks í Ásgarði.
Heimamenn í Stjörnunni náðu þó fljótt að jafna sig á látunum í gulum og þeir Daníel Guðmundsson og Renato Lindmets jöfnuðu leikinn í 13-13 með tveimur þristum og heimamenn sigu fram úr með því að herða tökin í vörninn og leiddu 26-22 að loknum fyrsta leikhluta. Páll Axel var með 14 stig hjá Grindavík eftir fyrstu 10 mínúturnar en Renato 8 í liði Stjörnunnar.
Glíman harðnaði nokkuð í öðrum leikhluta en jafnt var á með liðunum, Garðbæingar héldu stífri pressu á boltanum og gaf það nokkrum sinnum vel þegar Bradford og Soskic komu upp með boltann fyrir Grindavík. Páll Axel var þó öllu rólegri í öðrum leikhluta en hann jafnaði leikinn í 38-38 með þriggja stiga körfu en Garðbæingar gerðu síðustu sex stig fyrri hálfleiks og leiddu því 44-38 í leikhléi.
Lindmets var með 18 stig í liði Stjörnunnar í leikhléi og Justin Shouse 12 en Páll Axel var með 17 stig hjá Grindavík og Ólafur Ólafsson 6.
Garðbæingar komu grimmir út í síðari hálfleikinn og náðu að koma muninum upp í 10 stig, 48-38 þar sem Renato Lindmets var eitraður. Varnarleikur heimamanna var að gera Grindvíkingum erfitt fyrir og á köflu fengu Stjörnumenn að leika afar stíft og létu gestirnir það fara í taugarnar á sér sem skilaði sér í óþarfa mistökum.

Þegar líða tók á leikhlutann fjarlægðust Stjörnumenn enn frekar og Jovan Zdravevski setti niður þrist þegar 11 sekúndur voru eftir og Stjarnan leiddi 67-51 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Jovan var aftur á ferðinni snemma í fjórða leikhluta og jók muninn í 22 stig með þriggja stiga körfu, 75-53 en Jovan var duglegur í síðari hálfleik á báðum endum vallarins. Grindvíkingar kvöddu þó ekki án þess að bíta frá sér og minnkuðu muninn í 75-62 með 9-0 áhlaupi en Stjarnan var með undirtökin og með grimmum varnarleik kláruðu þeir dæmið 91-74.
Garðbæingar þvinguðu út 25 tapað bolta hjá Grindvíkingum í kvöld og pressuðu vel og mikið á boltamenn Grindavíkur sem hefðu þurft að vera töluvert öruggari í öllum sínum aðgerðum.
Stjarnan: Justin Shouse, Daníel Guðni Guðmundsson, Jovan Zdravevski, Renato Lindmets og Fannar Freyr Helgason.
Grindavík: Nick Bradford, Ólafur Ólafsson, Páll Axel Vilbergsson, Mladen Soskic og Ryan Pettinella.
Heildarskor:
Stjarnan: Renato Lindmets 29/5 fráköst, Justin Shouse 23/7 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 19/7 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 7, Daníel G. Guðmundsson 6, Marvin Valdimarsson 4/6 fráköst, Fannar Freyr Helgason 3/6 fráköst, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Magnús Guðmundsson 0, Guðjón Lárusson 0, Dagur Kár Jónsson 0, Kjartan Atli Kjartansson 0.
Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 27, Ryan Pettinella 15/13 fráköst, Mladen Soskic 10, Ólafur Ólafsson 10/4 fráköst, Nick Bradford 10, Helgi Björn Einarsson 2, Björn Steinar Brynjólfsson 0/6 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 0, Ómar Örn Sævarsson 0, Ármann Vilbergsson 0, Egill Birgisson 0.
Dómarar: Jón Guðmundsson, Einar Þór Skarphéðinsson
Ljósmyndir/ Tomasz Kolodziejski – [email protected]
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson – [email protected]





