Fjórir stórleikir eru á dagskránni í kvöld en nú er úrslitakeppnin í Iceland Express deildunum í fullum gangi og 1. deildir karla og kvenna á lokasprettinum. Í Vodafonehöllinni verður væntanlega margt um manninn þegar Valsmenn freista þess að vinna sér inn sæti í Iceland Express deild karla en þeir leiða einvígi sitt gegn Þór Akureyri 0-1 eftir sigur fyrir norðan í fyrsta leik liðanna síðasta föstudag.
Leikir kvöldsins:
Iceland Express deild karla:
19:15 ÍR-Keflavík (Keflavík 1-0 ÍR)
19:15 Haukar-Snæfell (Snæfell 1-0 Haukar)
Iceland Express deild kvenna:
19:15 Njarðvík-Hamar (Hamar 1-0 Njarðvík)
1. deild karla:
20:00 Valur-Þór Akureyri (Þór 0-1 Valur)
Í gær vann kvennalið Vals öruggan sigur á Stjörnunni í úrslitaeinvígi 1. deildar kvenna og sigur karlaliðs félagsins síðasta föstudag gerir Valsliðin að einu liðunum í úrslitakeppnunum til þessa til að vinna útileik. Allir aðrir leikir hafa unnist á heimavelli.
Eins og sjá má á leikjum kvöldsins eru það Keflavík og Snæfell í Iceland Express deild karla sem geta með sigrum í kvöld komist í undanúrslit keppninnar en KR varð fyrst liða í gær til þess að tryggja sig þangað inn með því að vinna rimmuna gegn Njarðvík 2-0.
Hamarskonur leiða gegn Njarðvík eftir nauman sigur í Hveragerði en þrjá sigra þarf í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna til að komast í úrslitaeinvígið.
Fjölmennum á vellina!
Mynd/ Úr safni: Calvin Wooten fór mikinn í fyrsta leik Þórs og Vals.





