Úrslitakeppnin í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik hófst í dag þar sem þeir félagar Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Elías Bæringsson tóku 1-0 forystu með Sundsvall Dragons gegn Jamtland Basket.
Sundsvall vann leikinn 74-62 þar sem Alex Wesby var stigahæstur með 22 stig í liði Sundsvall en Hlynur gerði 17 stig, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Jakob Örn bætti við 8 stigum, 7 stoðsendingum og 2 fráköstum.
Sundsvall er því 1-0 yfir í einvíginu og mæta næst Jamtland á útivelli en þrjá sigra þarf til að komast áfram í undanúrslitin.
Mynd/ Hlynur skilaði góðu dagsverki hjá Sundsvall í dag.





