Þrír leikir fara fram hjá íslensku liðunum á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. U18 ára landslið karla ríður á vaðið kl. 09:00 að íslenskum tíma er þeir leika gegn Finnum. Þá er gaman að greina frá því að í gærkvöldi varð ljóst að Ísland og Svíþjóð myndu leika til úrslita um Norðurlandameistaratitilinn í U18 ára flokki karla þar sem Norðmenn lögðu Finna í gærkvöldi með 7 stiga mun.
Leikir Ísland í dag:
09:00 Ísland-Finnland U18 karla
11:00 Ísland-Danmörk U16 karla
17:00 Ísland-Finnland U16 kvenna





